QASHQAI

QASHQAI

Bensín sjálfsk. SE - 141 hö - 8L/100 km. - 5.590.000

Dísel beinsk. SE - 130 hö - 5,1L/100 km. - 4.990.000

Dísel sjálfsk. SE - 150 hö - 7,2L/100 km. - 5.990.000

Þessi nýji bill frá Nissan er einn af nýju jepplingunum sem svo margir sækjast eftir. Hann er með 2WD og 4WD sem gefur ökumanni kost á að haga stillingum í takt við aðstæður og spara þar af leiðandi eldsneyti. Nú er Nissan Qashqai fáanlegur með nýjum og mjög spennandi díselvélum sem eyða aðeins frá 4,6 lítrum af eldsneyti á hverja 100 km. sem er með því allra lægsta sem þekkist meðal fjórhjóladrifsbíla á Íslandi. Jafnframt er útblásturinn mjög lítill og hér er því á ferðinni umhverfisvænn kostur. Í boði eru tvær vélarstærðir af dísel; ný kraftmikil og ótrúlega sparneytin 1.6dCi sem fæst með 6 gíra beinskiptingu og sérstökum auto stop-start búnaði sem drepur á vélinni og ræsir hana sjálfkrafa þegar stöðvað er, t.d. á umferðarljósum og lágmarkar þannig eldneytiseyðslu. Qashqai fæst svo sjálfskiptur dísel með 2.0dCi 150 hestafla vél sem búinn er 6 gíra sjálfskiptingu. Komdu og kynntu þér þennan frábæra bíl, fáðu að reynsluaka og finndu hvað hann alveg einstaklega hljóðlátur og skemmtilegur í alla staði.

SE staðalbúnaður

  • Útvarp og 6 diska geislaspilari
  • Rafdrifnar rúður
  • Rafdrifin aðfelling á speglum
  • Fjarstýrðar samlæsingar
  • 17” álfelgur
  • ISO-fix barnabílstólafestingar
  • SE áklæði
  • Kælir í hanskahólfi
  • ESP stöðugleikastýring
  • Leðurstýri
  • ABS hemlalæsivörn
  • Stiglaus CVT með 6 gíra handskiptimöguleika
  • Hraðastillir (Cruise Control)
  • Rengskynjari á rúðuþurrkum
  • Þokuljós
  • Hiti í sætum
  • Aurhlífar
  • 7 manna (QQ+2)
  • Tvískipt tölvustýrð loftkæling (Air Conditioning)
  • Aksturstölva
  • 12 volta DC-raftengi
  • 3ja punkta belti í öllum sætum
  • Hæðarstilling á ökusæti
  • EBD hemlajöfnun
  • 2WD – 4WD og 4WD lock stillingar
  • Hliðar- og gardínuloftpúðar
  • Samlitir speglar
  • Bluetooth símabúnaður
  • Fjarstýringar í stýri fyrir útvarp og síma
  • Rafdrifnir útispeglar
  • Veltistýri
  • Samlitir hurðahúnar
  • Bakkskynjarar, Vökvastýri
  • Þakbogar
  • Glerþak (QQ+2)
  • Litaðar afturrúður

LE staðalbúnaður

  • Aukalega í LE útgáfunni
  • Leðursæti
  • Bakkmyndavél
  • Xenon aðalljós
  • Lykalaust aðgengi
  • Glerþak með lituðu gleri
  • USB tengi

Request an e-Brochure

Reserve a Test Drive

Send to a friend