NISSAN ÞJÓNUSTA

 

VARAHLUTIR

OPNUNARTÍMI
Varahlutaverslunin er opin frá 8:00-18:00 alla virka daga.   Þar eru afgreiddir vara- og aukahlutir fyrir Nissan bíla. Við kappkostum að eiga alla algengustu varahluti á lager en sérpöntum einnig alla aðra varahluti frá birgjum okkar í Evrópu og Japan.

Afgreiðslutími sérpantana eru í flestum tilfellum sjö til tíu virkir dagar ef varan er til á lager erlendis. Hjá okkur starfa sérhæfðir starfsmenn með víðtæka reynslu og þekkingu á sviði vara- og aukahluta sem tryggja þér ávallt áreiðanlega og persónulega þjónustu.


NEYÐARVAKT
Utan opnunartíma er starfrækt neyðarvakt sem gefið er samband við frá aðalnúmeri okkar; 525-8000. 


STAÐSETNING
Verslunin hefur fært sig um set og er nú fyrir miðju húsi ásamt verkstæðismóttökunni. Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna í verslunina og viljum vekja athygli á stórbættri og glæsilegri aðstöðu með tölvum, sjónvarpi og kaffihorni.

 

LÉTTSKOÐUN

ÁNÆGJULEG NÝJUNG – ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU 
Nú er mikilvægara en áður að hugsa vel um bílinn og lágmarka líkur á óvæntum og oft kostnaðarsömum skakkaföllum. Með Þessari nýjung gefst viðskiptavinum okkar kostur á að ráðfæra sig við okkar færustu sérfræðinga meðan þeir framkvæma skoðun á bílnum í nýrri og glæsilegri aðstöðu. Léttskoðun er hluti af nýjum þjónustuáherslum B&L og Ingvars Helgasonar ehf. sem viðskiptavinir geta nýtt sér að kostnaðarlausu


HVAÐ ER GERT
Í Léttskoðun er, kannað ástand hemlakerfis, fjöðrunnarkerfis, drifrásar og annarra helstu öryggisþátta, athugað og mælt ástand rafgeymisins, gefnar ráðleggingar um hvernig minnka má eldsneytiseyðslu, athugað ástand dekkja, hlustað eftir hljóði sem kann að velda þér áhyggjum eða hvað annað sem þér kanna að liggja á hjarta varðandi bílinn


LÉTTSKOÐUN SPARAR PENINGA
Með því að koma reglulega í Léttskoðun sparar þú tíma og möguleg kostnaðarsöm útgjöld vegna þess að Léttskoðun er fyrirbyggjandi aðgerð sem gefur þér kost á að taka yfirvegaðar ákvarðanir um nauðsynlegt viðhald og leita hagkvæmra leiða. Að lokinni skoðun færðu í hendur útprentun á ástandi bílsins og ef þú óskar eftir getum við gert þér tilboð í þau verk sem þú vilt fá unnin.


AUÐVELT Í FRAMKVÆMD
Þeir sem vilja koma með bíl í Léttskoðun þurfa að hafa samband við þjónustuver okkar í síma 525 8000 og panta tíma eða senda okkur línu í gegnum netsamtal á www.lettskodun.is.  Ef hvorugt hentar er sjálfsagt að renna við hjá okkur og þá munum við kippa bílnum inn um leið og hægt er.

 

VERKSTÆÐI

OPNUNARTÍMI
Verkstæðið er opið alla virka daga frá 8:00-18:00. Tímapantanir og aðrar upplýsingar er við koma bílnum er hægt að nálgast í síma 525 8000 eða í gegnum netsamtal á www.ih.is.

Verkstæðið okkar er vel tækjum búið og þar vinnur vel þjálfað starfsfólk  sem annast allar þjónustuskoðanir og almennar viðgerðir en auk þess eru þar framkvæmdar véla- og sjálfskiptingarviðgerðir. Verkstæðið er einnig búið fullkomnum hjólastillingarbúnaði ásamt búnaði til  hemla- og demparaprufana.


SKUTLUÞJÓNUSTA OG BÍLALEIGA
Þegar þú kemur með bílinn þinn í skoðun eða til viðgerðar hjá okkur bjóðum við þér upp á ,,skutluþjónustu" - þ.e. að keyra þig heim eða til vinnu og sækja síðan aftur þegar bíllinn þinn er tilbúinn.

Einnig stendur þér til boða bílaleigubíll á mjög hagstæðum kjörum meðan við þjónustum bílinn þinn. Fyrir þá sem eru mikið á ferðinni er þetta frábært kostur - kynntu þér verð og úrval bílaleigubílA þegar þú pantar tíma hjá okkur.

 

NEYÐARÞJÓNUSTA

NISSAN VEGAAÐSTOÐ UM ALLA EVRÓPU
Til að tryggja ánægju og væntingar til gæða bílanna býður Nissan viðskiptavinum sínum upp á 24 tíma neyðarþjónustu, 365 daga á ári fyrir alla þá sem kaupa nýjan Nissan bíl. Nissan vegaaðstoðin er viðbót við hefðbundna ábyrgðaskilmála sem framfylgjast samkvæmt nánari skilgreiningu í Ábyrgðar- og þjónustubók sem fylgir bílnum.
Nissan vegaaðstoðin er eigendum nýrra Nissan bíla að kostnaðarlausu og gildir hvar sem er í evrópu. Gildistími Nissan vegaaðstoðarinnar er 3 ár og hefst um leið og bifreiðin er skráð


NEYÐARNÚMER
Símanúmer Nissan vegaaðstoðarinnar eru 800 9000 fyrir símtöl innanlands og +354 570 9099 þegar hringt er frá útlöndum


HVAÐ SKAL GERA Í NEYÐARTILVIKUM
Sá (sú) sem hringir í Nissan vegaaðstoðina þarf að hafa eftirfarandi upplýsingar á takteinum:

  • Skráningarnúmer bíls
  • Fyrsta skráningardag
  • Nafn eiganda
  • Gerð bíls og verksmiðjunúmer
  • Eðli bilunarinnar

Eftir að hringt hefur eftir Nissan vegaaðstoð munu þjónustufulltrúar vegaaðstoðarinnar hafa samband við þann hjálparaðila sem er næstur þeim stað þar sem atvikið á sér stað og fá til að bregðast eins hratt við og mögulegt er. Athugið að þjónustufulltrúar vegaaðstoðarinnar munu sjá til þess að sá sem hringdi fái reglulega upplýsingar um gang mála þangað til að aðstoð berst og tryggt hefur verið að ferðalangar komist leiðar sinnar á ný


HVAÐ ER INNIFALIÐ Í NISSAN VEGAAÐSTOÐINNI
Vegaaðstoðinni er ætlað að lágmarka óþægindin sem skapast þegar óvænt bilun hamlar för. Nissan vegaaðstoðin er hugsuð sem þjónusta við bíleigendur sem eru á ferð á merktum vegum í öllum löndum evrópu. Vegaaðstoðin er ekki eigendum að kostnaðarlausu ef bifreiðin er utan alfara leiða
Kjarnaþjónusta Nissan vegaaðstoðar:
Viðgerðir á bílum á þeim staða sem bilunin á sér stað – meira en helmingur allra óvæntra bilana eru minniháttar bilanir sem hægt er að laga á staðnum
Dráttarþjónusta – ef bilun er það alvarleg að ekki er hægt að laga bifreiðina á staðnum er bifreiðin dregin til næsta þjónustverkstæðis Nissan til frekari skoðunnar.


VIÐBÓTARÞJÓNUSTA Í NEYÐARTILFELLUM
Ef ekki er hægt að laga bifreiðina á skömmum tíma eða bíða þarf eftir varahlutum á eigandi rétt á að fá lánaðan bíl í allt að 3 vinnudaga eða þar til að viðgerð líkur, allt eftir hvoru líkur fyrr.
Einnig geta ferðalangar gert kröfu á að ljúka ferð með almenningsamgöngutækjum og til baka fyrir bílstjóra til að sækja bíl eftir viðgerð

  • Leigubíll í allt að 50 km
  • Lest (skip), fyrsta farrými
  • Flugmiði (Economy class), ef bilun á sér stað í meira en 1000 km fjarlægð að heiman

Hótelkostnaður – ef ferðalangar kjósa að bíða meðan á viðgerð stendur eiga ferðalangar rétt á að fá greiddan hótelkostnað á 3ja stjörnu hóteli með morgunmat í allt að 3 nætur
Endurheimta – ef ekki er hægt að laga bifreiðna á 3 dögum og hún hefur verið skilin eftir hjá Nissan þjónustu umboði sem er ekki er það umboð sem næst er heimilisfangi eiganda á eigandi rétt á að láta senda bifreiðina til síns Nissan þjónustuumboðs.

 

ÁBYRGÐIR

ALMENNT VIÐHALD OG ÁSKILIÐ VIÐHALD
Þegar talað er um ábyrgðir og hlutverk eigenda og seljenda í tengslum við ábyrgðir er venjulega talað um:

Almennt viðhald - sem felur í sér þá þætti sem skoða þarf við daglegan rekstur (akstur) ökutækisins. Þetta eru grundvallaratriði sem notandi (eigandi) þarf að fylgjast með reglulega til að ökutækið starfi rétt og eðlilega svo sem hvort geri óeðlilegt hljóð, titring, hopp, brak, halla, þyngsli, blett(i) eða lykt vart við sig. Ef notandi (eigandi) verður var við eitthvað af þessu skaltu láta kanna það nánar hjá næsta viðurkennda þjónustuaðila Nissan eins fljótt og auðið er. Sjá nánar um almennt viðhald í þjónusthandbók bílsins.

Áskilið viðhald  - Áskilið viðhald skal framkvæmt af viðurkenndum þjónustuaðila bílsins (sjá tengil með þjónustuaðila).  Áskilið viðhald  er nauðsynlegt að framkvæma til að viðhalda verksmiðjuábyrgð framleiðanda bifreiðarinnar. Áskilið viðhald samkvæmt töflunni hér að neðan eru svo kallaðar A og B skoðanir sem framkvæma þarf reglulega (sjá km í töflu). Rétt er að taka fram að vegna aðstæðna svo sem hitastigs og að jafnaði stuttra akstursvegalengda bíleigenda, sem fer ekki vel með vélbúnað, mælum við með að komið sé með bílinn í smurþjónustu á milli Aog B skoðana (merkt S í töflunni hér að neðan) en við bendum á að það er ekki hluti af áskildu viðhaldi. Sjá nánar um áskilið viðhald í þjónustuhandbók bílsins.

(S) Smurþjónusta er fyrst eftir ekna 7.500 km eða 6 mánuði, hvort sem sem fyrr verður. Síðan á milli A og B skoðana eftir hverja ekna 7.500 km eða 6 mánuði frá A eða B skoðun, hvort sem sem fyrr verður.
(A) A skoðun er fyrst eftir ekna 15.000 km eða 1 ár, hvort sem fyrr verður. Síðan á  30.000 km eða 2ja ára fresti, hvort sem fyrr verður.
(B) B skoðun er ítarlegri en A skoðunin og er fyrst eftir ekna 30.000 km eða 2 ár, hvort sem fyrr verður. Síðan á 30.000 km eða 2ja ára fresti, hvort sem fyrr verður

(S) 7.500 km
(A) 15.000 km
(S) 21.500 km
(B) 30.000 km
(S) 37.500 km
(A) 45.000 km
(S) 52.500 km
(B) 60.000 km
(S) 67.500 km
(A) 75.000 km 
(S) 82.500 km
(B) 90.000 km
(S) 97.500 km
(A) 105.500 km
o.s.frv.

Til að viðhalda ábyrgð bílsins er einnig mikilvægt að nota varahluti frá framleiðanda bílsins en með því tryggir þú að varahlutirnir samræmist gæðakröfum framleiðandans.