NissanConnect appið býður upp á fjartengdan aðgang
NissanConnect appið býður upp á fjartengdan aðgang
að búnaði sem tengist öryggi og þægindum, veitir upplýsingar um bílinn og
gerir þér kleift að forrita sérsniðnar áminningar.
The NissanConnect Services app offers remote access to safety and convenience features, provides vehicle information and lets you program personalised alerts.
STAÐSETNING BÍLS
Manstu ekki hvar þú lagðir bílnum? Appið man það. Þú einfaldlega opnar NissanConnect Services í símanum og ýtir á „vehicle location“ (staðsetning bíls).
FJARSTÝRÐ FLAUTA OG LJÓS
Þú getur einnig virkjað flautuna og ljósin með fjarstýringu til að finna bílinn. Við það gefur flautan frá sér hljóð og ljósin blikka í stutta stund. Þegar þörf er á að hafa lágt er hægt að láta aðeins ljósin blikka.
FJARSTÝRÐAR HURÐIR
Gleymdirðu að læsa bílnum eða ertu ekki með lyklana á þér? Þú getur á einfaldan hátt læst honum eða opnað hann með fjögurra tölustafa PIN-númeri sem þú velur þér í appinu.
FJARSTÝRÐ HITA- OG LOFTSTÝRING
Ertu mikið fyrir þægindin? Þá er þetta eiginleiki fyrir þig. Forhitaðu eða forkældu Nissan-bílinn með fjarstýrðri hita- og loftstýringunni áður en þú sest inn í hann. (Eingöngu rafbílar)
HRAÐAVIÐVÖRUN
Þú getur stillt hraðamörk þegar þú lánar Nissan-bílinn og fengið tilkynningar þegar þau eru rofin.
BANNTÍMAVIÐVÖRUN
Viltu ekki að bíllinn sé á ferðinni á tilteknum tíma? Þá geturðu stillt kjörnotkunartíma í appinu og notað þá til að koma í veg fyrir að bílnum sé ekið utan þess tíma.
SVÆÐISVIÐVÖRUN
Þú getur afmarkað landsvæði í appinu og fengið viðvaranir í hvert sinn sem bíllinn ekur inn á eða út af viðkomandi svæði.
ÞRÝSTINGUR Í HJÓLBÖRÐUM
Notaðu appið til að athuga þrýsting í hjólbörðunum til að þú hafir á hreinu hvenær þörf er á að pumpa í þá.
OLÍUSTAÐA
Þú færð senda tilkynningu í snjallsímann þegar olíuþrýstingurinn fellur í bílnum.
ÁSTAND LOFTPÚÐA
Það er alltaf gott að hafa á hreinu hver staðan er á loftpúðunum áður en haldið er í langferð. Appið sendir þér tilkynningu ef bilun kemur upp í loftpúðunum
VÆNTANLEGT
Stjórnaðu eða uppfærðu þjónustuna eftir þörfum í Nissan Store.
VÆNTANLEGT
Stjórnaðu eða uppfærðu þjónustuna eftir þörfum í Nissan Store.
COMING SOON
Manage or upgrade your services as you like via the Nissan Store.
NissanConnect Services app
Sjáðu hvaða bílar eru samhæfir við NissanConnect Services appið.
Sjáðu hvaða bílar eru samhæfir við NissanConnect Services appið.
Discover the cars that are compatible with the NissanConnect Services app.
Búnaður sem í boði er fer eftir útgáfu og er ýmist staðalbúnaður eða aukabúnaður (gegn aukagjaldi).
Skilyrði fyrir notkun NissanConnect Services eru snjallsími með samhæfu iOS- eða Android-stýrikerfi og SIM-kort með gagnamagni frá símafyrirtæki. Sæktu NissanConnect Services appið endurgjaldslaust og búðu til notandanafn og aðgangsorð. Tengdu snjallsímann við bílinn með NissanConnect Services með því að skrá þig inn með sama notandanafni og aðgangsorði. Öll þjónusta er háð þjónustusvæði farsímakerfis. Hægt er að nota Wi-Fi í bílnum með innbyggðri og þráðlausri internettengingu. Samstarfsaðilar okkar bjóða upp á gagnapakka í reiki [Orange eða annað samstarfsfyrirtæki á hverjum stað] og fellur þessi þjónusta undir skilmála viðkomandi aðila. Núna er Wi-Fi í bílnum í boði gegn aukagjaldi í áskrift, frá fyrri hluta ársins 2020. Frekari upplýsingar fást hjá söluaðila Nissan.
*Væntanlegt