Verð frá
HARÐGERÐUR OG SNJALL
Nýi NP300 Navara 4x4 pallbíllinn, sem er fáanlegur sem King Cab eða Double Cab, er með það allt sem þarf: Kraftmikla og skilvirka vél, kröftugan undirvagn og þægindi og nýstárlega tækni á sama plani og Nissan jepplingur. Snjall bíll fyrir frístundirnar eða fjölhæft verkfæri í vinnu, Navara-bíllinn er það sem þú vilt að hann sé – með þeim bónus að hann er hagkvæmur hvað varðar rekstrarkostnað. Reyndar höfum við svo mikla trúa á kraftinum og gæðunum í nýja Navara-bílnum að við bjóðum upp á 5 ára ábyrgð sem staðalbúnað.
NISSAN býður núna upp á staðlaða 5 ára framleiðandaábyrgð um alla Evrópu*.
Þetta er meira en bara ábyrgð því hún inniheldur:
Og með 1 árs eða 15.000 km þjónustutímabili fyrir dísilbílinn færðu 5 ára hugarró.
*5 ára / 160.000 km (hvort sem fyrr verður) framleiðandaábyrgð á Navara og Nv-200 (að undanskildum rafmagnsbílnum e-NV200: 5 ára / 100.000 km framleiðandaábyrgð á kerfishlutum, 3 ára / 100.000 km á hinum hlutum ökutækisins)
*Ótakmarkaður akstur fyrir lakk, ósvikna Nissan-varahluti og fylgihluti, vegaaðstoð og tæringarábyrgðir.
Til að fá frekari upplýsingar skaltu skoða ábyrgðarbækling Nissan.
ENN Í FULLU FJÖRI
Harðgerður, kvikur og nýtískulegur, nýi NP300 Navara 4x4 er sá nýjasti í langri línu Nissan-pallbíla – við framleiddum þann fyrsta árið 1935. Á leiðinni ruddum við brautina með King Cab árið 1977, hinu nýstárlega C-rásar bindikerfi árið 2005 og nú, í fyrsta skipti með fjölliða gormfjöðrun að aftan í milli stórum pallbíl. Stolt arfleifð okkar heldur áfram í dag og deila 14 milljónir pallbílaeigenda henni með sér á spennandi slóðum í 180 löndum. Svo lengi sem það verða ævintýri við sjóndeildarhring mun Nissan vísa veginn.
HARÐUR Á VEGINUM. VÆNN VIÐ VESKIÐ ÞITT
Kröftug 160 hestafla eða 190 hestafla 2,3 lítra dísilvélin í nýjum NP300 Navara, þrautreyndur í milljónir kílómetra, skilar verklegri frammistöðu og eldsneytissparnaði sem þú krefst af pallbíl. Leiðandi eldsneytissparnaður í sínum flokki sem hefst í 6,3 l/100 km og CO₂ við 167 g/km
Hvort sem hann er á landsbyggðinni eða steinsteypufrumskóginumer Nissan NP300 Navara alltaf í essinu sínu. Það eru þrjár akstursstillingar – hátt fjórhjóladrif fyrir léttan utanvegaakstur, lágt fjórhjóladrif fyrir alvöru utanvegaakstur í sandi, snjó eða djúpri leðju, eða tvíhjóladrif þegar þú ert á malbikinu. Með eiginleika eins og aðstoð við að taka af stað í brekku og stjórn þegar farið er niður brekku, er hann pallbíllinn sem er tilbúinn í allt.
Nissan NP300 Navara 4x4 pallbíllinn er með stigaundirvagn með lokuðum bitum, í stað grindar með bitum opnum á einni hlið sem sumir aðrir pallbílar eru byggðir á. Einnig er fjölliða gormafjöðrun að aftan. Þetta býður upp á betri akstur og kvikari meðhöndlun og bætir burðargetuna.
LÆSTU FARMINUM
Dráttargeta 3,5 tonn
Með 1 tonns burðargetu og dráttargetu upp á 3,5 tonn, sem er leiðandi í sínum flokki, er Navara 4x4 pallbíllinn með allt sem þú þarft til að vinna verkið. Nytsamlegt brautarkerfið á pallinum þýðir að þú getur fest hluti af öllum stærðum og lögun við hliðarnar þrjár á pallinum.