Hönnun innanrýmis
Hannað fyrir þægindi
Finndu hina fullkomnu akstursstöðu með rafstillanlegum sætum, í boði í bæði svörtu og hvítu. Með stemningslýsingu geturðu síðan skapað andrúmsloft sem passar við augnablikið.
Stórt samtvinnað skjásvæði
Með tveimur 14,3 tommu skjám og innbyggðu Google færir nýr Nissan LEAF þér það besta í upplýsingum og afþreyingu á þægilegan og aðgengilegan hátt.
Rúmgott innanrými
Slétt gólf og snjallar geymslulausnir skapa rúmgóð framsæti með meira fótarými. Höfuðrýmið eykst einnig — dimmanlega panorama glerþakið þarf ekki hefðbundið skyggni og skilar því 30 mm auknu höfuðrými fyrir opnara yfirbragð. Ekki má gleyma þeim sem sitja að aftan: snjöll hönnun á baki framsæta eykur fótapláss í aftursætum, sem rúma auðveldlega bakvísandi barnastól án þess að skerða rýmið að framan.
Bose® hágæða hljóðkerfi
Níu hátalarar, sem eru snyrtilega felldir inn í innanrými Evolve útfærslunnar, skapa djúpa og kraftmikla hljóðupplifun án þess að skerða rýmið í bílnum. Mikilvæg skilaboð, eins og leiðsögn eða símtöl, eru spiluð í sérstökum hátalara í höfuðpúða ökumanns, svo farþegar geta notið tónlistarinnar án truflana.