Akstursaðstoð og öryggistækni

Snjalltækni sem auðveldar þér aksturinn.

Njóttu akstursins með ProPILOT Assist með Navi-link

ProPILOT Assist með Navi-Link [1] [2]

Mynd af Nissan QQ ProPILOT

Nú geturðu keyrt án allra áhyggja. ProPILOT Assist með Navi-Link heldur ekki eingöngu bílnum á miðri akreininni í forstilltri fjarlægð frá ökutækinu á undan heldur notar það einnig innbyggð kort frá TomTom® til að sjá fyrir beygjur, gatnamót, fráreinar og fleira og stillir bílinn af í samræmi við þessar upplýsingar til að tryggja snjallari og afslappaðri akstur. Það getur jafnvel aðlagað stilltan hraða í samræmi við tilgreindan hraða á umferðarskiltum. 

[1] Ekki reiða þig eingöngu á aðstoðarkerfi fyrir ökumann. Hugsanlega virkar búnaður ekki við allar aðstæður og skilyrði. Hraðatakmarkanir og aðrar takmarkanir eiga við. Upplýsingar um skilmála varðandi tækni Nissan fást hjá söluaðila Nissan eða á www.nissan.is/ 

[2] ProPILOT Assist er aðeins í boði í tilteknum gerðum bíla og aðeins í þeim sem eru sjálfskiptir. ProPILOT Assist er háþróuð ökumannsaðstoðartækni en getur ekki komið í veg fyrir árekstur. ProPILOT Assist er ætlað til notkunar á þjóðvegum með hendur á stýri og augun á veginum (þar sem gagnstæðar akreinar eru aðskildar með vegriðum). Navi-Link styður umferðarskiltagreiningu en getur hugsanlega ekki greint öll umferðarskilti við allar aðstæður. Ökumaður ber fulla ábyrgð á fylgjast með umferðarskiltum og fara eftir umferðarlögum. Hann ber fulla ábyrgð á að vera vakandi, aka á öruggan máta og geta tekið við stjórn bílsins hvenær sem er. Frekari upplýsingar er að finna í eigendahandbókinni.

[3] Sjónlínuskjár er hentugur eiginleiki sem varpar nauðsynlegum upplýsingum á framrúðuna svo að þú getir haft þær í sjónmáli meðan þú heldur fullri athygli á veginum.

[4] Búnaður í boði fer eftir útgáfu og er ýmist staðalbúnaður eða aukabúnaður (gegn aukagjaldi)

[5] Kerfið greinir ekki litla hluti undir stuðaranum og það kann að vera að það greini ekki hluti nálægt stuðaranum eða á jörðinni.

Myndir og lýsingar eru aðeins til viðmiðunar. Í sumum tilfellum eru myndirnar af bílum sem ekki eru ætlaðir íslenskum markaði og vísa ekki til tiltekinnar bílgerðar, útfærslu eða tilboðs. Búnaður á myndunum er hugsanlega ekki í boði, er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða aðeins í boði sem aukabúnaður (gegn aukagjaldi).